20.5.2008 | 16:17
Ég, tekíla og fleira !!
Við skruppum til Hellishóla þarna síðustu helgi og vorum þar í 2 nætur í svona litlu sumarhúsi, voða nice. Soldið drukkið og spilað og sungið og krakkarnir léku sér úti allan daginn og langt fram á kvöld. Rosa fín aðstaða þarna fyrir alla,golf, leiktæki og hægt að veiða.
Var sæmilega dugleg í ræktinni í vikunni sem leið, en hef ekki mælt mig né stigið á vigtina, ætlaði að gera það á Föstudaginn en það stóð bara LOW á vigtinni.. kannski var ég bara orðin svona létt að það mældist ekki hummm Trúlegur andskoti en jæja...
Ég og Silla ákváðum það á Föstudagskvöldinu um 21 leytið að skella okkur á djammið...
Mín var með einhvern púka allan daginn og ákvað að hendast í mjólkubúðina rétt fyrir sex og kom heim og fékk mér öl. Svo fékk ég mér annan öl og svo hvítvín og áður en við fórum var ég búin að hvítvínsflöskuna og nokkra bjóra og bara gaman...
Tókum taxa á Naza þegar leigarinn var búinn að handfjatla hendurnar á Sillu og kenna henni að fokka, fórum við inn og beint á barinn að sjálfsögðu
Kóngurinn byrjaði ekki að spila fyrr en uppúr 1 og spilaði bara til 2.30 eða eitthvað, frekar stuttir en góðir tónleikar engu að síður
Nokkrar ferðir voru farnar á barinn og ýmist fengið sér wodka í burn eða bjór en svo enduðum við í gaddem skotunum
tekíla, tópas eða opal og blabla og mín bara varð öfug á 0-1....
Röltum svo á Apótekið og allt í lagi með það nema svo kemur allt í einu dyravörður og Veigar hennar Sillu og þá á að henda mér út sökum ölvunar Haldiði að það sé dónaskapur???
Veigar stóð bara í dyrunum að tjatta við dyravörðinn þegar hann fékk skilaboð um að hann ætti að henda okkur út... hann alveg bara ohhh, þá segir Veigar, "best að ég labbi bara einn hring og athuga hvort ég sjái ekki konuna mína einhversstaðar"
Eltir dyravörðinn og beint í fangið á okkur hahaha ... Auðvitað vorum það við vinkonurnar og fyllibytturnar sem átti að henda út
Veigar ákveður bara að henda þessum byttum heim á strumpastrætóinum sem ég er b.t.w alveg viss um að hann hafi makað sætin öll útí sleipiefni.. allavega minn stól því að eitthvað átti ég nú erfitt með að sitja á mínum rassi kyrr !!
Jæja heim komst ég endanum, þá fengu græjurnar að finna fyrir því og gólfið mitt, því eitthvað gekk líka erfiðlega að halda glasinu uppréttu. Svo heimtaði ég að maðurinn minn myndi skutla mér aftur í bæinn og nei eitthvað var hann nú tregur á því (skilekkertíhonum) þannig að mín gat þá bara loksins sofnað!! Öllum til mikillar gleði og þá aðallega hjá manninum mínum
úffff vaknaði ennþá full um 1 á Sunnudeginum, engin þynnka þannig fyrr en abra um kvöldið, þa´varð ég aðallega bara þreytt....
Er svo júróvísíón partý næstu helgi???
bleble
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2008 | 20:59
Heilsa og aftur heilsa !
Jæja góðan og blessað daginn allan daginn
Þessa dagana snýst allt um að ná þessum aukakílóum af sér, hugsa aðeins um sjálfan sig, borða hollt og hafa gaman...
Byrjaði LOKSINS í ræktinni núna fyrir alvöru 28 apríl og er búin að setja mér markmið að vera búin að losa mig við 6.5 kíló fyrir 1 júní Soldið hátt já ég veit, en mér bara skal takast það
Fór í mælingu í morgun og þá voru fokin 3.2 kíló mér til ómældrar ánægju og eru þá 3.3 eftir á 3 vikum... mér hlýtur að takast það, andsk hafi það
Mig langaði svoo í útilegu um helgina áður en ég sá spánna.. rigning, rigning og aftur rigning !!! Geðveikt eða þannig
Eini staðurinn sem reyndar er búið að opna eru Hellishólar, stutt að fara og góða aðstaða, en ekkert rosalega gaman að fara með 2 börn í þessu veðri,þó maður sé með fellihýsi.. sé fyrir mér að sitja þar alla helgina með börnin inni og er ekkert voða spennt fyrir því Sjáum til hvað setur... er alveg til í bara eitt sumarhús þar í eina nótt, bara til að komast aðeins í burtu í annað umhverfi og hafa það kósy með öl eða eitthvað gott...
Svona smá sumarfílingur að hellast yfir mann þegar sólin lætur sjá sig, fórum með Aron í sund í fyrsta skipti um daginn og fannst honum það bara mjög gaman og var rosa stilltur. Skellti honum aftan á hjólið mitt um daginn í stólinn og hjólaði uppí vinnu með hann og pabbinn tilbaka... ekki langt, gott veður og hann skríkti af ánægju mest allan timann, fannst þetta mjög svo spennandi
Elska að prófa svona nýtt með honum og sjá hvernig hann verður... t.d setti ég hann í bílstóllinn hennar Guslu um daginn,og honum fannst það mjög spennandi og liggur við brosti allan tímann og þurfti að skoða allan heiminn
En jæja, má ekki vera að þessu lengur, kreisý í sólinni og heyri í mér fljótlega aftur
Over and out
Dóra heilsufrík
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.4.2008 | 19:37
Dóra the baker- eða ekki :Þ
Byrjum á síðustu helgi
Fórum til Sollu og Arnars og grilluðum saman, drukkum bjór og hvítvín, rauðvín og allt annað sem að kjafti kom Spiluðum á gítar, sungum og höfðum gaman og svo skelltum við Solla okkur í bæinn.. testuðum Tunglið, fórum á Sálina á Naza og enduðum á Apótekinu þar sem okkur var hent öfugum út kl 6.30
Tókum Taxa þegar við vorum orðnar eins og snjókarlar um 7 og mikið var gott að komast í bælið úffff... ár og aldir síðan ég fór í bæinn síðast og belive me, maður er ekki að missa af miklu.. gaman að skreppa samt aðeins
Karlinn rölti svo til þeirra aftur á Sunnudeginum með Aron og leyfði byttunni aðeins að lúlla sér á meðan þeir horfðu á leikinn... skrapp svo þangað, soldið þunn og fórum svo bara heim í pizzu
Á Mánudeginum komu Sandra og íris með Úlfar og Fróða í heimsókn.. Sandra skellti bara í köku þegar hún kom og Íris kom með bakkelsi. Sátum svo að snæðingi bara og strákarnir léku sér saman og slógust um aparóluna
Miðlingurinn minn átti 6 ára afmæli á Þriðjudeginum og fékk hún sína langþráðu línuskauta í gjöf frá okkur... Fór út þegar hún kom heim úr leikskólanum með pabba sínum að prófa þá og þótti það mjög gaman
Aron minn nældi sér i hor og kvef lillinn á Miðvikudaginn og er búinn að vera ansi pirraður og sofið illa á nóttunni greyið, og þar af leiðandi ég líka
Fór með hann uppá vakt í gær og hann allur skoðaður en ekkert fannst í eyrum eða neitt,þannig að þetta gengur vonandi fljótlega yfir....
Þegar ég kom heim beið mín Kitchen Aid hrærivélin sem ég er búin að bíða eftir síðan ég byrjaði að búa eða s.s í 16 ár Maðurinn minn var eitthvað farinn að vorkenna mér og mínum handþeytara eitthvað sem ég hef notað 16 ár takk fyrir.. fékk hann einmitt í innflutningsgjöf frá ömmu þegar ég var 16 ára ... Hann er nú búinn að standa fyrir sínum og búa til nokkrar kræsingarnar
Mín byrjaði svo í gær að baka aðeins og gekk bara vel nema svo í dag þá klúðraði ég 4 marengs botnum, en það hefur bara ekki skeð hjá mér og mínum handþeytara.. annað hvort þeytti ég of lengi eða stutt.. er ekki að skilja þetta alveg
Er búin að halda áfram að baka í kvöld og það hefur bara gengið vel, ég bara hætti við þessa leiðindaköku ljóta kaka !
En jæja, best að fara að lúlla sér,nóg að gera á morgun og Ása hættu þessu bulli (losna ekki við hana úr símanum) Múahahaha
Over and out
Bloggar | Breytt 19.4.2008 kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.4.2008 | 15:11
Helgin...
Svei mér þá, það fer bara að koma helgi einusinni enn ekkert smá fljót að liða þessar vikur...
En jæja fórum á mótið um síðustu helgi og syss gekk bara rosa vel. Bætti sig um 20 kíló í heildina og var bara nokkuð sátt held ég, fékk bikar og alles
Allar ánægðar með verðlaunin sín
Eftir mótið var brunað í ríkið*hóst* og beint heim í sturtu og ditta aðeins að fyrir matarboðið.... Um 18 komu Solla, Arnar,Siggi, Stella,Steini, Dóri og Silla ásamt krakkaormunum sínum öllum. Vorum 19 stk þar á tímabili Rosa fjör...
Byrjuðum á að grilla hammara fyrir ormana og fórum svo í nautalundirnar fyrir stóra fólkið og rautt með og vá hvað þetta rann ljúflega niður.. púfffff
Bjórinn tók svo við, gítarspil og söngur, fimleikar hjá litla fólkinu og svo aðal DJINN í húsinu réðist á græjurnar.. þið sem þekkið til, vitið hver það var hehe
Fólk fór svo að týnast heim í rólegheitunum og koma litla fólkinu í bælið, ég og Solla röltum svo heim til hennar, fengum okkur smá meiri bjór og svo fór ég bara heim að lúlla
Eitthvað var nú búið að tala um að gera eitthvað skemmtilegt næstu helgi, en einhverra hluta vegna bara man enginn hvað það var, svo að það kemur bara í ljós híhí
Over and out
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2008 | 20:49
Go Elma go ;)
Vá hvað ég er dugleg í blogginu núna hehe
Allt í goodý hjá okkur, nema Sandra greyið virðist hafa tognað aðeins í hálsinum og öxlinni eftir ákeyrsluna. Þetta bara lagast með tímanum og ekkert hægt að gera í þessu.... Reyndar fékk hún þessa pest sem er að ganga og búin að vera í móki með tæplega 40 stiga hita og hálsbólgu en er öll að koma til
Fór í dag niður í ólavíu og óliver og keypti kerru handa Aroni.. Fengum rosa fína Graco Quattro deluxe á 25 þús kjell... Ekki fannst mér það nú mikið miðað við hvað hún er flott og geðveikt gott að keyra hana. Varð nú að prufukeyra hana aðeins í dag og skrapp i Kringluna með litla mann, og honum leiddist þetta nú ekkert,að sitja eins og kóngur bara og fylgjast með mannlífinu
Morgundagurinn verður frekar busy....
Opið hús á leikskólanum milli 10 og 12 og þaðan verður brunað beint á Metal mótið í kraftlyftingum, en litla systir er að fara að keppa.. Já LITLA systir !!!
sjá link hér....
Sú stutta verður ekki ánægð með þetta hjá mér en what a hekk !!
Ætlum að mæta þarna familýjan og styðja skottuna. Þetta verður örugglega voða gaman.
Verðum svo með matarboð um kvöldið.. Solla og Arnar ætla að mæta í grill og bjór og með framhaldið er ekki ákveðið... Sjálfsagt endarmaður uppí bæli á miðnætti eins og svo oft áður
svo segjum við bara ÁFRAM ELMA !! híhíhíhí
Over and out
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2008 | 23:34
Örlagadagur-Bubbi og rafmagn.....
Það væri kannski ekki úr vegi að rita hérna einhverjar línur svona í tilefni dagsins
Ekkert kannski spes dagur að neinu leyti, nema mætti segja að þetta væri örlagadagurinn hennar Söndru minnar
Kom heim í kvöldmat áðan og tilkynnti mér það að hún hefði orðið fyrir bíl á hjólinu !!
Þannig var nú mál með vexti að hún ákveður það að fara í hjólatúr með vinkonu sinni í dag.. okei allt í lagi með það EF hún yrði bara hérna í hverfinu og með HJÁLM !!
Já já það var ekkert mál og út fór hún.
Nema það, að það er obbosslega erfitt að hlýða því sem manni er sagt og brunað uppá höfða á Dominos til að gúffa í sig eins og nokkrum brauðstöngum svona í forrétt
Svo á leiðinni heim þá brunar hún yfir götuna, reyndar á göngubraut en á rauðum karli og búmmm....
Hún útskýrði þetta nú ekkert vel fyrir mér, en konan sem lenti í þessu, hringdi í mig áðan og talaði við mig.
Hún s.s. lendir á frambrettinu og dettur í götuna og bíllinn keyrði yfir framdekkið á hjólinu og hjólið skelltist utan í bílinn og barasta öll hliðina á honum ónýt...
Kannski best að aka það fram að Sandra stóð bara upp strax og meiddist ekkert alvarlega, nokkrar skrámur og smá verkur í hendinni....
Konan greyið fékk algert sjokk og ætlaði bara að hringja á sjúkrabíl og þorði ekki að fara útú bílnum, því að hún hélt að Sandra væri bara stórslösuð eða eitthvað annað verra, en maðurinn sem var með henni í bílnum fór nú út strax og ath með hana, eins og bíllinn fyrir aftan þau.
Þau hringja á lögguna, hún kemur og tekur skýrslu af söndru og konunni og tekur myndir af bílnum og allt það, og sagði að hún væri nú bara heppin að vera á lífi, hún hefði nú bara aldrei séð neinn bíl jafn mikið skemmdan eftir svona óhapp
Og svo af því að dóttir mín er svo mikil gelgja þessa dagana og útlitið skiptir soldið miklu máli, þá var stelpuskömmin bara með hjálminn á stýrinu á hjólinu takk fyrir og fékk hún skömm í hattinn fyrir það frá löggunni !
Eins gott segi ég nú bara að ekki fór verr, þetta er þvílík heppni og hefur hún verið með einhvern góðan verndarengil yfir sér þessa stundina....
Þegar konan hringdi í mig áðan,þá þekkti ég hana strax,því hún er fastakúnni hjá okkur og ég sagði bara ****** ertu að keyra yfir barnið mitt? Henni brá nú soldið greyinu,því hún þekkti ekki Söndru, en hún var búin að vera í þvílíku sjokki greyið og ómugleg eftir að þetta gerðist, en ég sagði henni nú bara að slaka á ,þetta hafi nú bara verið slys og enginn meiddist, sem væri nú fyrir öllu.
Það er ekki nóg að taka hjálminn með sér, heldur þarf maður að NOTA HANN !!!
En jæja í annað.... Lubbi skorteins í Köben 18 okt Hell yeahh beibí
Búið að bóka og nú er bara að bíða í rúmt hálft ár hehehe
Ætla að skella mér með Sollu, hafa það gott, drekka öl, versla kannski oggupínuponsupons í H&M, kíkja á Klámbúllurnar á Estegade, drekka meiri bjór, kíkja á kónginn, drekka meiri bjór og hafa gaman og drekka svo örlítið meiri bjór.. híhí
Förum á Fimmtudegi um hádegið og komum heim á Sunnudagskvöldinu.. eigum eftir að redda hóteli eða einhverju sambærilegu svona til að sofa úr sér yfir blánóttina og geyma H&M pokana fyrir okkur hehe
En að öðru.... hvernig fór fólk að í gamla daga með ekkert rafmagn? ég bara spyr
Þetta er bara fáranlegt hvað maður er háður þessu.... eins og kannski flestir vita þá varð rafmagnslaust hérna í grafarvoginum meðal annars i dag og auðvitað lentum við í því....en ekki hvað...
Karlinn var að vinna en lokaði bara á meðan þar sem ekkert útlit var fyrir rafmagn á næstunni og kom heim.. já sææælllll
Hvað gátum við gert ?? EKKERT
Ekkert net, sjónvarp, gat ekki þvegið né soðið vatn handa kútnum mínum, gátum ekki farið í bíltúr því bíllinn var inní bílskúr og hurðin með rafmagnsopnara, svo var ég alltaf að kveikja öll ljós allstaðar og settist niður og ætlaði á netið.. gat farið í kapal í tölvunni, leikið við karlinn, hlustað á útvarpið í símanum mínum og skoðað kökubækur jeiiii þvílíkt gaman
Mikið var ég feginn þegar rafmagnið kom aftur úfffff
Þetta er massa ritgerð hjá mér og ég bara held að ég sé hætt í bili
Luv Dóra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.3.2008 | 11:13
WTF !!
HALLÓ?? Hver situr á helv.. kamrinum samfellt í 2 ár??
Ef þetta er ekki lygi, á þetta par við mikla erfiðleika að stríða.. segi ekki annað !!
Greri föst við klósettsetuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2008 | 15:32
Sökkar feitt !!
Að júróbandið hafi unnið þetta, en ekki Merzedes Club Að vísu fannst mér þetta lag það skásta fyrir utan Hey hey hey,hó hó hó, en það verður bara að segjast eins og er, að þau hefðu sko ekki átt að sleppa þessum bakröddum,því söngkona skeit uppá bak, var svo fölsk og bara heyrðist varla í henni
Hvað Friðrik Ómar varðar,þá missti ég sko allt álit á honum, og var það nú ekki mikið fyrir þegar hann gubbaði útúr sér þessum orðum "Glymur hæst í tómri tunnu" !!
Margur heldur mig sig, á við hér, enda verður mannfja..... kallaður bara Frikki Tóma Tunna hér eftir á mínu heimili !!
Mikið væri nú flott ef upp myndi koma sú staða að talningin hafi eitthvað misfarist, og Merzedes Club myndi vinna þetta og Frikki Tóma Tunna yrði að éta ofan í sig þessi orð
Já ég er kvikindi,, i know !!
Have a nice day
Eurobandið fer til Serbíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.2.2008 | 11:32
Helll yeeahhh
Við þurfum sko ekkert að ræða það, það þetta lag fær klárlega mitt atkvæði
Mér finnst sko ekkert líkt með þessum tröllum og leiðindapúkanum henni Sylvíu Nótt sem var svo athyglissjúk með öllu og með þessa endalausu stjörnustæla þegar hún keppti.. fyrir utan það, þá er þetta lag bara miklu betra og rosalega grípandi og skemmtilegt
Ég spái því að ef þetta lag verður sent út, á það eftir að ná langt
Áfram Merzedes Club
Silvía Nótt breytist í stælta karlmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.2.2008 | 15:59
Þorrinn blótaður...
í kveeeld
Ætla að skella mér á þorrablót með Ásu í kvöld Drekka eins og nokkra kalda og taka fáein spor.. þar að segja ef Maggi Kjartans stendur undir nafni og fær mann til að dilla sér aðeins með gömlu góðu lögunum
Maggi Kjartans í góðri sveiflu .....
Heyrst hefur að Eiki rauði hafi verið fenginn til að skemmta og taka að sér svokallaða skemmtistjórastöðu Hvort það sé hinn eini sanni eða einhver annar Eiríkur og er rauðhærður er ekki vitað
= LOOK Á LIKE ?????????????
Svei mér þá.. þeir eru bara alveg eins...... wrarrrr
Jæja, húsið opnar kl 19, maturinn byrjar kl 20, svo eru einhver skemmtiatriði, leikir,söngur og eitthvað voða voða gaman... Held barasta að ég hafi bara alltaf farið nema í fyrra þegar ég var bomm af bollunni og það eru nú nokkur skipti, bara gaman...
Skál yfir til ykkar
Dóra og Kalli kaldi...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tenglar
Börnin
- Aron Ernir
- Guðlaug Birta
- Sandra Sif
- Sölvi Fannar
- Sóley Dögg
- Tvíbbarnir Sindri Snær og Sara Ósk
- Tvíburabræðurnir Magnús og Aron
- Kristófer Svavar frændi
- Ásta María frænka
Bloggarar
Afþreying
síður sem ég skoða reglulega
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar