12.2.2008 | 20:09
Smá uppdeit :D
Ekki kannski alveg að standa mig í þessum bloggheimi en hér kemur svona eitthvað síðan síðast
*Litla bjútíbollan mín orðin 7 mánaða
*Gusla búin að fá gubbuna
*Fór á djammið með Sillu og sýndi gamla góða takta í poolinu eða þannig sko....
*Hef ekkert mætt í ræktina síðan fyrir krist ekki alveg að virka sko...
* Ætla að skella mér á Vatnsendablótið á Laugardaginn alltaf að djamma
*Allt hárið á Guslu klippt eða svona við axlir....
* Allt að verða kreiisý í naglastússinu.. líka eflaust gott að láta mig negla sig
Annars gengur lífið bara sinn vanagang, vinna, éta og sofa
Tékkið á þessum link.. hrikalega dúllan http://brackmedia.com/screenclean/
Ætla segja þetta gott í bili og láta fylgja með myndir af Bjútíbollunni minni
Over and out
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.1.2008 | 13:59
Sunnudagsleti....
Vá hvað maður getur verið latur svona á Sunnudegi, tala ekki um blíðuna sem er úti. Maður hefur sko enga löngun til að gera neitt eða fara neitt i þessu ógeðisveðri
Aumingja mamma og pabbi eru veðurteppt á Egilsstöðum as we speak, áttu flug kl 11 í morgun, en átti að ath með flug núna kl 14. Fóru þangað í gærmorgun að vesenast í málum frænda okkar sem lést á Fimmtudaginn. Hann var bróðir hans afa heitins og mamma mín nánasti ættingi hans, þannig að það er í hennar höndum að sjá um útförina og allar hans eigur með meiru. Ekki auðvelt þar sem hann átti heima á Egilsstöðum og útförin hans verður þar.
Annars ligg ég hér bara á blístri uppí bæli og hef það kósy með lilla mann mér við hlið streinsofnadi. Er svo góð húsmóðir *hóst* að ég skellti kjúllabringum á pönnuna og rjómapiparsósu í pottinn og hafði það hér í hádegismat Allir vel útkýldir og saddir Svo er náttúrulega nammi í desert
Skellti mér í langþráða klippingu í gær og litun. Tók bara slatta af hárinu, þvílíkur munur og léttir Er með núna axlasítt og skátopp, alger gelllla .. eða þannig eða svoleiðis ...
Er alveg tóm núna....Over and out
Rakst á þessa á netinu HVAÐ ER MÁLIÐ ???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.1.2008 | 22:03
Varð að henda þessu hérna inn...
Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.
Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.
Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.
Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.
Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.
Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.
Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.
Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.
Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.
Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.
Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.
Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og rassgatið á þér með.
Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.
Mér finnst þetta svo fyndið
Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð.
Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.
Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.
Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kostur þarf lítið að skeina)
Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.
Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.
Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa....
hahahahahahahahaahahaha
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.1.2008 | 15:04
Bobbi fiskur hvað?
Þessi maður á nú ekki að fá að hvíla á Þingvöllum þó hann hafi kunnað að spila skák oghana nú !!! Búin að vera hér með lögheimili síðan 2005. Þessi maður á bara skilið að hvíla í almennum garði eins og hver annar maður. Maður verður bara reiður að lesa svona hel.... bull !
Fischer grafinn á Þingvöllum? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2008 | 00:09
Teknir í rassg....
Ferlegt alveg...var þetta nú samt ekki nokkuð vitað?
Heyrði einhversstaðar spá um leikinn.. önnur hljómaði 31-29 fyrir íslandi og hin var 30-28 Það má segja að þar séu ekki góðar spákonur á ferð Múhahaha
Svíar sigruðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.1.2008 | 13:34
LOL
Hann ætti kannski að læra einhverjar aðrar "pikköpp" línur greyið Vinkið er augljóslega ekki hans leið til að ganga í augun á stelpum
Missti handlegginn eftir að vinka stelpum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.1.2008 | 10:56
Hvað er að ske?
Reynt að nema barn á brott af skólalóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.1.2008 | 21:25
Erfið helgi....
Úff erfið helgi að baki. Aron byrjaði að fá kvef á Föstudaginn og var ansi pirraður um nóttina. Litla greyið var svo stíflaður að hann gat nú varla bara andað, hvað þá með snudduna sína
Hugsaði nú um að fara með hann uppá læknavakt allan Laugardaginn að kíkja í eyrun hans en barasta var ekki að nenna því fyrir mitt litla líf í því ástandi sem ég var í. Var með svo mikla vöðvabólgu að ég gat ekki hreyft á mér hálsinn og hausverk í stíl
Ákvað nú að drulla mér samt fyrir litla greyið og jújú.. kominn með aftur í eyrun Þannig að ég labbaði þaðan út með lyfseðil handa honum og tilvísun á sjúkraþjálfun handa mér !
Jæja þýðir ekkert að ræða það neitt frekar, nýti mér það nú bara ef ég skána ekkert. Var samt töluvert betri í dag en í gær og er það sjálfsagt nuddinu að þakka sem ég fékk á Föstudagskvöldinu. Takk Elma mín
Ákvað að skella sturtuklefanum mínum í gang áðan og fara með litla kvebbalinginn minn bara í gufu ...Er svo gott að fara í gufu þegar maður er svona stíflaður. Vorum þar bara í nokkar mínútur og lillin vel rauður og heitur og horið lak í stríðum straum.
Jæja, ætlaði bara að henda inn nokkrum línum.. þarf að sinna kvebbalingnum mínum
Over and out
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.1.2008 | 21:58
Loksins loksins...
Það voru þung skref, en engu að síður góð skref þegar ég loksins aulaðist í ræktina áðan. Er ekkert smá fegin að hafa drifið mig
Var búin að ákveða það í morgun að ef ég yrði betri í hálsinum(vöðvabólga) þá skyldi ég nú bara drulla mér og ekkert múður! Svo var hringt frá leikskólanum kl 15 í dag og okkur tilkynnt að Guðlaug væri orðin lasin,þannig að ég varð bara voða "fegin", því þá "kæmist" ég ekkert í ræktina Haldiði að maður sé í lagi EÐA HVAÐ?
En sem betur fer þá varð múslan mín bara hress fljótlega og vildi endilega drífa sig í ræktina með mömmslu sinni, þannig að við bara drifum okkur og Aron Ernir líka Guðlaug hitti Köru Lind og léku þær sér saman á meðan Aron Ernir sat bara í makindum sínum í göngugrindinni og ældi á staffið í gæslunni Ekki lasin þessi elska, heldur vara hann nýbúinn að teiga heilan pela
Ég tók því bara rólega svona til að byrja með og labbaði bara í 30 mín og tjattaði við Bryndísi á meðan. Þorði nú ekki sprengja vigtina í þetta skiptið, geri það kannski á morgun hehe
En svo að máli málanna !! Aron Ernir 6 mánaða í dag takk fyrir EIGUM VIÐ AÐ RÆÐA ÞAÐ EITTHVAÐ??? Nei hélt ekki.... Jú kannski smá Vá hvað tíminn flýgur áfram, þetta er ótrúlegt alveg. Maður verður nú kominn undir græna áður en maður snýr sér við, svei mér þá.
Læt þetta duga af bullinu í mér í dag og læt fylgja með eina mynd af afmælisbarninu mínu
Over and out
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.1.2008 | 21:46
Hahahaha...
Ef þessi er ekki seinheppinn þá veit ég ekki hvað Gott að kvikindið náðist Múhahahaha
Óheppinn brotamaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Tenglar
Börnin
- Aron Ernir
- Guðlaug Birta
- Sandra Sif
- Sölvi Fannar
- Sóley Dögg
- Tvíbbarnir Sindri Snær og Sara Ósk
- Tvíburabræðurnir Magnús og Aron
- Kristófer Svavar frændi
- Ásta María frænka
Bloggarar
Afþreying
síður sem ég skoða reglulega
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar